Krilla Blogg

Velkomin á Krilla Blogg

11.01.2008 18:02:35 / krillim

Nýtt blogg!!!

Á maður að fara aftur að blogga?

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 20:27:57 / krillim

Sýn 2...

Var að horfa á Ísland í dag og sá þar viðtal við yfirmann Sýnar 2 og fannst mér (endilega segið ef þið eruð ekki sammála) eins og þetta væri pínu tilbúið viðtal. Þó svo að spyrillinn væri endalaust að reyna að segja "en er þetta ekkert of dýrt?" Svo spurðann aldrei meir! Svo sagðann að það væru um 80% landsmanna sem væru sáttir með þetta (reyndar 80% af sýnar áskrifendum) og fullyrti að þeir væru virkilega sáttir með verðlagninguna!!!! Kommon!!! Eru þeir geðveikir? ok. Þetta verður ódýrara þegar maður er með stöð 2, (um 5.500 kall á mán) Sýn, (um 2.500-3.000 kall sjálfsagt) og svo allann pakkan... Heyrði í bítið um daginn á bylgjunni að það væri um 12.000-13.000 kall á mán. Man ekki hvort Enski væri inní því... Ok ef maður er með það þá verður þetta sem sagt ódýrara... Við erum að kaupa okkur bíl og ætlum að taka lá fyrir honum, og ég var eitthvað að vellta fyrir mér greiðslubyrgðinni, og fór að spá í að greiðslubyrgðin af 1.000.000kr bílaláni í 7 eða 8 ár er um 15.000 kall. Sem sagt ef þú sleppur við þennan pakka frá 365 í 7-8 ár þá geturu fengið þér bíl uppá Millu:) Þetta er reiknisdæmi sem ég kann... Þó svo að við séum með stöð 2 núna í 3mán (fengum það frítt þar sem ég vann á Bylgjunni) þá mun ég ekki sakna stöðvar 2 hið minnsta. Þegar við horfum á sjónvarpið hér er það yfirleitt skjár 1 sem er frítt og var með Enska á almennilegu verði en ekki ætla ég að taka enska í gegnum 365. Fyrr fæ ég mér disk eða mæti á bakaríið í hvert skipti sem Arsenal keppir...

 Ég ætla að hafa nýja skoðanakönnnun en ég fullirði að kallinn i Ísland í dag er að bulla!!!!

 

Stjáni "Enskt" Stuð 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 17:16:43 / krillim

Meir um kvótann...

Eða öllu heldur því tengdu... Til að toppa þetta þá afnámu þessir blessaðir menn álagninguna á svo kallaðan "gáma fisk" En það er sá fiskur sem fer óunninn úr landi. Þetta hefur verið (ef ég man rétt) 25% á þorski 15% á ýsu og 10% á rest. En síðasta árið hefur þetta verið 10% á allt og nú á að taka þetta allveg af!!!!! Eru menn geðveikir í kollinum eða er einhver leyni stefna hjá ríkistjórninni að allir eiga að fara í 101 eða þar sem álverin rísa? Maður þarf bara að fara að taka meira próf eða leggjast á skólabekk og læra forritun eða bókhald og flytjast í 101... Hvað stendur í vegi fyrir stórfyrirtækjunum núna að flytja alla sína vinnslu erlendis? Þeir þurfa hvort eð er að senda afurðirnar út, af hverju ekki núna bara að senda hráefnið út og láta vinna það þar (eins og svo margir eru farnir að gera í öðrum greinum) þar sem launakostnaður er miklu minni.... Ég vona að Mávi eða einhverjir álíka lesi þetta ekki og fari að fá einhverjar hugmyndir en ég er viss um að þar sem þeir eru það klárir að þeim hafi nú þegar dottið þetta í hug... Guð forði okkur frá því að þeir láti verða af því...

Æi gleymi því alltaf. Þetta verður í lagi... Stjórnvöld ætla að leggja vegi fyrir okkur (sjálfsagt til að auðvelda okkur flutninginn í 101), mála opinberar byggingar og síðast en ekki síst leggja ljósleiðara( þannig að við fáum betri gæði af fréttum um það hvað það er æðislegt í 101)

 

p.s. ég hef ekkert á móti Rvk bara því hvað stjórnmálamenn úr rvk séu á móti restinni..

 

Stjáni "101" stuð


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 19:02:34 / krillim

Viðurkenni mistök mín...

Ég verð að viðurkenna það að ég kaus Samfylkinguna í síðustu kosningum og hef aldrei séð eins mikið eftir atkvæði mínu... Ríkistjórnin var að skera niður Þorsk kvótann um 63.000 tonn( úr 193.000 tonnum niður í 130.000 tonn) í dag og ég veit vel að reyndar er þessi blessaði sjálfstæðisflokkur búinn að eiga sjávarútvegs stólinn ansi lengi og þetta komið frá þeim, en að samfó hafi ekki barist á móti þessu og þetta skorið niður um 30-35.000tonn til að menn geti aðlagast að þessu... Verð að viðurkenna að ég kaus Samfó til að losna við Framsókn úr samstarfinu við Sjálf. En ég sé svo eftir því að hafa ekki kosið Frjálslynda! Gæti ekki verið meira sammála þeim sem eru að koma með yfirlýsingar um þetta eða að "kvótakerfið sé gjaldþrota" og að núna verður bara meira um brottkast og svindlað fram hjá vigt... Það er t.d. talið að það sé um 50-60.000 tonn sem fara fram hjá vigt og í brottkast... Ég heiti veglegum verðlaunum þeim sem getur útskýrt það fyrir mér afhverju þeir sætta sig ekki við það að þetta sé gallað kerfi og reyna að útiloka þessi 50-60.000 tonn með því að taka til hjá sér. Frekar enn að minnka hjá öllum og líka þeim sem eru búnir að vera heiðarlegir öll þessi ár... Minnist nú orða eins sjómanns sem hefur nú farið um ýmsar hafnir "það er hægt að fara fram hjá vigt alls staðar nema hérna á Dalvík" Þannig að ef einhver bátaeigandi (ekki markan reyndar:)) er að lesa þetta þá í guðana bænum sendiði löngutöng á ríkistjórnina og svindliði eins og þið eigið lífið eð leysa... Reyndar eru þið að því....

 

P.s. Þetta reddast kannski fyrir Dalvík þar sem þeir ætla að leggja ljósleiðara (skapar svona 10 störf) og flytja opinber störf hingað. Ég sé það ekki fyrir mér að þeir nái að dekka það með því. Og svo er það rúsínan í pilsuendanum.. En það er að þeir ætla að fara að mála opinberar byggingar á landsbyggðinni... Úffff.... Þannig að við þurfum ekkert að örvænta

 

Stjáni "þorsk" Stuð 


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 17:49:15 / krillim

DK

Stutt ferðasaga og nokkrar myndir frá Danmörku eru komnar inná barnaland... www.oktoberbumba.barnaland.is. Blogga betur seinna:lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 17:15:38 / krillim

Sumar Sumar Sumar....

Lofaði sjálfum mér að blagga í dag... nenni ekki að skrifa neitt því SUMARIÐ ER KOMIÐ (í annað skipti) 21 gráða á mælinum:) Bæbæ

 

Stjáni " grill,bjór" Stuð :)

P.s. Jibbí!!!!!!!!!! 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 20:41:49 / krillim

Blönduós

Jæja þá fer þessi tíma að lýða undir lok hérna á Blönduósi. Þó hann hafi verið lærdómsríkur og skemmtilegur oft á tíðum þá er ég guðs lifandi feginn.. Því eins og flestir vita nú þá er hún Magnea mín "ekki kona einsömul". Þannig að Það er bara eintóm hamingja "hér" í Reynihólum. Enda okkar fyrsta og bara spennandi að takast á við þetta. Þannig að okkar plan með að flytja til Dk þarf að sitja aðeins á hakanum að sinni. En við fórum í "okkar" fyrstu mæðraskoðun í dag og allt leit vel út. Það var góður hjart sláttur og gott spark og læti:) Vissi ekki að það væri hægt að heyra í sparki eftir aðeins 15vikur... En svona er þetta... En maður bíður bara spenntur yfir þessu pg það verður það skrýtnasta held ég þegar maður verður loks Pabbi:) En allavega þá fer maður svo loks að hitta Norðurstrandar gengið aftur eftir 3mán útleigð þegar það verður óvissu ferð næstu helgi. Hlakka geggjað til að hitta gömlu vinnu félagana:)

Bless í bili

Stjáni "pabba" Stuð:) !!!!!!!!!!! 


» 11 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 14:28:55 / krillim

Kýpur

Jæja þá erum við komin frá kýpur og það reyndar fyrir um 2 vikum síðan. Hef verið latur við að blogga þó að það hafi ekki verið mikið að gera hjá mér hérna á Blönduósi í síðustu viku. Lyfti varla litla fingri alla vikuna þar sem það var bara valsað og pakkað harðfisk alla síðustu viku og svo kláruðum við pokana þannig að það var bara 4manna verk og ein stelpan var bara í því að þrífa nokkra daga. En þar sem það er búið að vera svo gott veður alla þessa viku þá hefur verið nó af fiski... Vonandi samt fer þessi dvöl hérna á Blönduósi að vera búinn... En allavega eins og ég sagði þá vorum við að koma úr 2 vikna ferð til  Kýpur með Davíð og Magdalenu og heppnaðist hún bara fínt. Spilað nó af Tennis og Frispí. Ætlum að stofn Frisbí lið og munu æfingar fara fram í kirkjubrekkunni (Tími auglýstur síðar) En allavega þá kom "fyrsti" sumardagur þarna akkúrat síðasta daginn okkar og var um 30 stiga hiti og ekki ský á lofti. Það var nú samt ekkert slor veðrið þarna hina dagana nema nokkrir í 1 viku þegar það rigndi pínu á okkur. En maður fer allavega ekki út í íbúðina okkar þarna næsta árið þar sem ég leigði hana út daginn eftir að við komum heim.

Svo er verið að reyna að koma "81 árgangnum samann í sumar og hlakkr mig mikið til. Enda bara snillingar í bekknum mínum. Vona að sem flestir úr þeim árgangi sjái sér fært að mæta... En ég mun setja link inná síðu bekkjarinns hér til hliðar.

 

Kveðja

Stjáni "bekkjar" Stuð 


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 18:25:26 / krillim

Helgin....

... var bara fín. Þrátt fyrir erfiða byrjun. Meir um það seinna.. En já föstudagurinn var mátulegur, grill og næs heit. Svo fórum við hjúin til Lenu á laugardag í mat. Annars var maður ekkert kátur með að það sé landsleikja helgi (vika) Þær eru það leiðinlegasta sem til er (fyrir utan þegar Ísland gerir jafntefli við Frakka eða e-ð álíka) Maður gat ekki horft á einn einasta leik!!!! En allavega eins og ég sagði áðan þá byrjaði helgin ekki vel!!! Magnea var ekki hérna á Blönduósi síðustu viku og maður orðinn frekar leiður og smátt farið að hlakka til að hitta hana. Búinn að græja allt út í bíl þegar vinnunni var lokið, bruna af stað og nótabene Mika (like Grace kelly) fyrsta lagið sem ég heyrði í útvarpinu þegar ég var rétt kominn út úr bílastæðinu... Það þanið í botn og Hondan botn staðinn... Og græjurnar í heilsuspillandi styrk framan af... En Nei!!! Allt kemur fyrir ekki... Er búinn að vera að keyra í svona 20mín og er rétt að koma að beygjunni þar sem maður fer ef maður ætlar yfir kjöl eða í Blönduvirkjun (slétt sama hvort þið vitið hvar það er eða ekki:)) Heyrist ekki ppphhhhkkkkrrrr..... (Er að reyna að lýsa hljóðinu) Og bíllinn verður erfiður að stýra... Það var sprungið!!!!!! Og ekki nó með það þá var ég með fullan bíl af harðfiskkössum (sem orsökuðu þetta sjálfsagt) og ég þurfti að tína þá alla út til að ná í tjakkinn!!!!! Og til að bæta gráu ofan á svart þá mætti ég Himma og félögum svona 5mín eftir að vara dekkið var komið á og ég lagður af stað, af hverju gátu þeir ekki verið aðeins fyrr á ferðinni og ég hefði smátt doblað þá í að hjálpa mér... Ég hringdi í Himma bara til að heyra í honum og segja lífsreynslusöguna og djókaði með þetta þá sagði hann "Hhaa! Þannig sð það borgaði sig fyrir okkur að stoppa á Varmahlíð og fá okkur að éta" Ég var ekki sáttur:( En allavega þá eru ekki nema 6DAGAR Í KÝPUR og 5 þar til við förum til Keflavíkur og gistum á Hótelinu þar....

P.s. Allir að elta uppi Harfiskinn sem við fra mleiðum og kaupa hann... Hann er geggjað góður þó ég segi sj

alfur frá:)

Stjáni "Kýpur" Stuð


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 19:34:02 / krillim

Atkins kúrinn...

... eða reyndar andstæðan. Er á BlöndUósi (ekki Blöndósi) og er pukrast einn í tölvunni og horfa á imbann til skiptis. Sakna Magneu! Er búinn að vera á and atkins í dag. Er allavega ekki Atkins byggður upp á prótein? Er allavega bara búinn að innbyrða bjór og núðlur í allan dag... Ekki mikið prótein þó húsið sé fullt af harðfisk... HHHHmmmmm. Fór allt í einu að spá í það núna. Með feitu smjöri... Sjáumst...

 

Stjáni "harð" Stuð


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 20:01:54 / krillim

Blönduós...

Jæja þá loksins bloggar maður aftur, svolítið langt síðan seinast. Var búinn að lofa sjálfum mér að vera duglegri, en þetta er eins og áramótaheit, maður nennir því aldrei.

Eins og flestir vita núna þá erum ég og Magnea stödd á Blönduós að vinna í harðfiskvinnslu þar sem Norðurströnd tók við rekstrinum. Búin að vera núna hér í 1 og hálfan mánuð og fer að styttast í að við komum heim. Búið að vera fínt hérna, fyrir utan kannski sundlaugina hérna "andapollinn" eins og heimamenn kalla hana! Annars lítið að frétta nema að það eru 18 dagar í Kýpur ferðina :D Okkur til mikillar ánægju koma Davíð og Lena með. Reyni að vera duglegri núna að blogga.

P.S. Verið dugleg að kommenta :) 

Sæl að sinni.

Stjáni "blöndu" stuð :haha: 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 16:58:58 / krillim

Danmörk....

Já erum að græja allt hérna fyrir kvöldið, matur í ofninum og súpann á hellunni...

Óska bara öllum Gleðilegra Jóla og hitti ykkur öll á Víkinni á gamlárs þar sem við komum heim 29des...


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 12:28:27 / krillim

Danmörk:)

Jæja þá má maður segja fólki það maður verður í Dk yfir Jólinn þar sem við erum kominn... Tengdó voru vægast brugðið þegar við birtumst í dyragættinni... Bara gamann:) Það eru nokkrir kallar farni niður (carlsberg) og nokkrir Tubörg:) Fórum svo á Fjölskyldu Jólaball´í íþróttahúsi hér í bæ... Var soltið skrítið að upplifa það... Mömmur og pabbar með krakkana í kringum jólatréð og svo kom sveinki... En svo gerðist soltið magnað... Allir krakkarnir fóru að dansa og þessir yngstu með mömmum og pöbbum en hinir foreldrarnir og Afar og Ömmur sátu bara og þömbuðu Tuborg og Jóla Tuborg... Í fyrsta lagi yrði aldrei leifð bjór sala í íþróttahúsi heima og í öðru lagi yrðu sjálfsagt börnin tekinn af foreldrum heima ef þau væru full með krakkana á einhverju svona:) Bara gamann.... En jæja ég ætla að halda áfram að drekka minn kalla og blogga meira seinna:) Bæ í bili Stjáni Stuð

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 19:03:43 / krillim

Eins og að vakna upp frá vondum draumi!!!!

já ég frétti það áðann að sýn hefði keypt sýningarréttinn af Enska boltanum! Bravó! Hvað eigum við að gera núna? Hafa einn leik á laugardögum og kannski nr 2 ef hann er kl 17? ok þá byrja þeir með rásir eins og skjár sport og hafa nokkrar.. Gott og vel. En eigum við að þurfa að selja nýrað úr okkur fyrir það? Miðað við hvernig sýn hefur okrað á sinni dagskrá undanfarið? Hvernig var með HM þegar maður þurfti að borga 13.000.- kr fyrir mánuðinn! Þetta er nánast jafn dýrt og að eiga barn á Íslandi og þurfa að borga meðlög! Svo hlakkar í mér að heyra hvað þeir á sýn segja ef þeir hafa fleiri en eina stöð með leikjunum og með þessa "glæsilegu":) lýsa sem við eigum á öllum stöðvum  eru að lýsa þar sem þeir sögðu sjálfir að þetta væri árás á Íslenska tungu að hafa enska lýsa í leikjum... Svo ég vitni nú í einn úr borginni þegar vinur minn var að horfa á leik á pub þar (og það var sýnt á sky) "af hverju erum við ekki með á sýn? villtu virkilega hlusta á ruglið í þeim?" Ég hef ekkert persónulegt á móti sýnarmönnum þannig séð... Snorri er engu betri en Höddi Magg o.s.frv. en ég vill að þeir lofi sömu dagská á sömu kjörum og við höfum fengið og þeir hafa sagst hafa fengið góða "sponsora" og það eru baugs menn sem ég haf alltaf borið virðingu fyrir og vona að ég geti gert áfram!!!! Kommon Baugsmenn! Þið grædduð á okkur ekki taka af okkur Enska boltann!!!!

Einn sár og kvalinn

Stjáni Stuð

p.s. Mjög ánægður með að ég sé að fara til Dk og get horft á Enska án þess að þurfa að taka veð út á íbúðina mína:)


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 15:21:15 / krillim

Meira um þessa blessuðu hvali!!!

Var að lesa grein á visi.is eftir Hannes Hólmstein sem nótabene hefur ávallt farið í mínar fínustu!!!!! En þessi grein var nokkuð góð! Allavega þegar kemur að Hvalveiðum. en hér er smá texti úr henni. "Erlendir valdsmenn, sem mótmæla hvalveiðum, hafa ekki verið spurðir mikilvægustu spurningarinnar: Hvers vegna eru þeir á móti þeim? Ef svarið er, að hvalir séu í útrýmingarhættu, þá gildir það ekki um þá hvalastofna, sem veiddir eru á Íslandsmiðum. Nóg er af þeim, segja vísindamenn, og raunar meira en nóg, því að þeir eru skæðir keppinautar mannfólksins um fæðu úr sjó. Ef svarið er, að rangt sé siðferðilega að drepa hvali, þá má spyrja á móti, hvað valdsmönnunum finnist um það, að hvalir drepa fjölda sjávardýra sér til matar. Hvalamálið leiðir hins vegar hugann að öðru. Umhverfi okkar mannanna hefur batnað stórkostlega síðustu áratugi, eins og Björn Lomborg bendir á í hinni fróðlegu bók „Hið sanna ástand heimsins", sem kom út á íslensku árið 2000. Heimsendaspár hafa reynst rangar. Miklu færri dýrategundir eru til dæmis í útrýmingarhættu en haldið hefur verið fram. Einnig má nefna fólksfjölgun. Oft er sagt, að jörðin geti ekki brauðfætt þá milljarða manna, sem eiga eftir að bætast við á þessari öld. En mörg þéttbýlustu lönd heims eru í Norðurálfunni, til dæmis Holland. Það stendur íbúum þar ekki fyrir þrifum. Með „grænu byltingunni" á sjöunda áratug síðustu aldar stórjókst matvælaframleiðsla. Vissulega er enn til hungur í heiminum, en það má rekja til ófriðar og slæms stjórnarfars, ekki hins, að jörðinni sé ofboðið. Fleiri lifa nú en áður og betra lífi. Meðalaldur hefur tvöfaldast síðustu hundrað ár. Mjög hefur dregið úr barnadauða og margvíslegum smit- og hörgulsjúkdómum með aukinni velmegun og framförum í lækningum." En ég verð því miður að mótmækla síðustu málsgrein þar sem ég er eindreginn áhugamaður um blaðið Lifandi vísindi að þá les ég einhverntímann að ef öll heimsbyggðin mundi lifa eins og vesturlandabúar þá myndum við þurfa 8 plánetur eins og jörðina til að halda því gangandi... Auðvitað eru þeir að taka með í reikninginn hluti eins og olíu,málma og allskonar byggingarefni. En ég er viss um að það sé nokkur stór hluti af þessu matvæli ýmiss konar!!!!! Þannig að ég verð allavega að vera sammála Hannesi í því að´drepa hvalina... Því það nær þó allavega að fæða nokkrar hræður í viðbót:) kv. Stjáni "hugsunar" Stuð!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Það sem ég skoða
Klukkan